Sjónvarpsmaðurinn Sigmar Guðmundsson er ekki sáttur við sorphirðuna í Hlíðahverfinu í Reykjavík þar sem hann býr:
“Svona er um að litast í Hlíðunum. Ruslið síðast hirt fyrir jól. Flæðir úr tunnum um allt hverfið,” segir Sigmar og bætir svo við:
“Er þessi lélega þjónusta bundin við Reykjavík eða er þetta svona víðar?”