Anna Birna Þráinsdóttir sýslumaður á Suðurlandi hefur auglýst eftir stefnuvottum til starfa. Auglýsingin er hefðbundin og birtist meðal annars í Bændablaðinu í dag þar sem skilyrði sem umsækjendur þurfa að uppfylla eru talin upp.
Athygi vekur að fjórða skilyrðið er reynsla af frjósemisleiðbeiningum til bænda.
Anna Birna hefur verið sýslumaður á Suðurlandi í þrjú ár en var áður sýslumaður í Vík í Mýrdal.