Menningargosinn Megas kemur fram í auglýsingum fyrir Verslun Guðsteins Eyjólfssonar á Laugavegi og gerir það með sínum hætti með texta:
Hold er mold hverju sem það klæðist.
Verslun Guðsteins Eyjólfssonar er ein sú elsta í miðbænum en afkomendur Guðsteins seldu verslunina og húsnæði sitt við Laugaveg undir hótel fyrir nokkrum misserum og áherslur nýrra eigenda eru að skila sér í nýrri ímynd.