Einn skarpasti og beittasti athugandinn á Facebook er Ragnar Önundarson, fyrrum bankastjóri og krítarkortastjóri, sem daglega bendir á augljósar meinsemdir í samfélaginu sem eru þó flestum huldar:
“Rimlagjöld” eru vörsluskattar, dregnir af launum fólks, sömuleiðis framlög í lífeyrissjóði o.fl. og virðisaukaskattur. Sauðsvartur almúginn er sendur beint í steininn fyrir að skila þessu ekki. Einn launagreiðandi er þó undanskilinn, rīkið sjálft. Vangreidd iðgjöld í lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins nema um 600 milljörðum kr. Merkilegt siðgæði.