Jón Hjartarsson athafnamaður var að fa sér nýjan jeppa og sá vill tala við hann:
—
“Mér dauðbrá og varð svolítið feiminn fyrst í stað við Willys jeppann minn nýja, þegar hann lagðist í spjall við mig.
Hann sagðist vilja hafa nafn og spurði hvað hann ætti að heita. Ég sagði honum að hann mætti heita Mósi því hann væri þannig á litinn og hann var sáttur við það.
Svo bauð hann mér upp á dús og tengingar við CD diskana mína, USB kubbinn og iPoddana, Apple iPhoninn og leiðbeindi mér vingjarnlega inn í tölvukerfið sitt. “Say this again please”.
Núna segi ég bara; Call Maria – og hann hringir í frúna, eða FM og hann fer á útvarpið, HDD og hann fer á músíksafnið mitt – og líki mér ekki lagið þá er bara að segja Delete this. Þá segir hann “are you sure”? Yes – og lagið hverfur úr minninu.
Eina vandamálið er að hann vill ekki læra íslensku – kannski er hann rasisti.”