Úrsltin í slag Ásmundar Einars Daðasonar, fyrrum alþingismanns, og Gunnars Braga Sveinssonar, fyrrum utanríkisráðherra, um fyrsta sætið á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi verða 80-20 Ásmundi Einari í vil.
Þetta er mat framsóknarmann í heimabyggð sem munu sitja tvöfalt kjördæmaþing flokksins sem haldið verður um aðra helgi í þessu helsta vígi Framsóknarflokksins á landinu.