Ungur faðir var með syni sínum í sjoppunni á horni Grundarstígs og Skálholtsstíg, einni af þessum fáu sjoppum sem enn lifa og heita nú Mini-Market og eru eðli málsins samkvæmt dýrustu verslanir í heimi.
Sonurinn: Ég vil Cocoa Puffs í morgunmat á morgun,” sagði strákurinn og pabbinn svaraði að bragði:
“Það er svo dýrt hérna. Förum í Bónus á morgun.”
En svo leit hann á verðmiðann og spurði eigandann:
“Morgunkornið hérna er ódýrara en í Bónus. Hvernig ferðu að þessu?”
Eigandinn: Ég kaupi þetta í Costco.