Fréttaskeyti frá farþega:
—
Þeir 100 þúsund Íslendingar sem eru á póstlista Icelandair fengu áríðandi upplýsingar sendar frá fyrirtækinu með tölvupóstinum í dag.
Um 99,9% viðtakenda höfðu ekki hugmynd um að þetta væri yfirvofandi og prísuðu sig sæla að fá ábendingu um það frá Icelandair.
Fréttir herma að vefþjónar fyrirtækisins hafi farið um koll þegar inn streymdu þakkarpóstar fyrir að vekja athygli á þessu.