Bensínstöðvar í Reykjavík hafa breyst í ævintýraheim á örfáum misserum og þá sérstakleg þær þar sem 10-11 tók yfir bisniss innandyra. Minna þær mjög á Leifsstöð orðið – allsnægtir út um allt.
Lítil kaffihús hafa verið smíðuð í horn – eins og í Leifsstöð.
Í hillum er eftirsótt vara af öllu tagi – eins og í Leifsstöð.
Nema það vantar áfengið – en það er í Leifsstöð.
Helsti munurinn annar er sá að flest er ódýrara á bensínstöðvunum en í Leifsstöð.