Leikhópurinn Artik er að hefja söfnun á Karolinafund vegna heimildarverks sem þau eru að vinna að. Leikverkið er unnið upp úr viðtölum við fólk sem hefur upplifað alvarlegar afleiðingar ölvunaraksturs, bæði sem gerendur og aðstandendur fórnarlamba. Meginumfjöllunarefni sýningarinnar er hvaða áhrif það hefur á sambönd fólks og andlegu baráttuna sem fylgir í kjölfarið.
Selma og Alex hittust síðast fyrir fimm árum síðan. Fyrir tilviljun hittast þau aftur og þurfa þau þá að gera upp drauga fortíðar, ákveða hvort þau séu tilbúin til að axla ábyrgð á gjörðum sínum og hvort þau séu tilbúin til að fyrirgefa. Smám saman raðast saman atburðarrás sem varpar ljósi á hvað varð til þess að þau slitu sambandi. Við kynnumst því hvernig þau höfðu áhrif hvort á annað og hvers vegna þau eiga erfitt með að halda áfram með líf sitt. Er hægt að fyrirgefa þeim sem þú elskar mest ef viðkomandi varð valdur að dauða einhvers með gáleysi sínu?
“Það er erfitt að hata einhvern þegar þú þarft mest á honum að halda.”
Verkið er unnið út frá viðtölum við einstaklinga sem þekkja afleiðingar ölvunaraksturs af eigin raun, svokölluð Verbatim-aðferð. Horft á báðar hliðar málsins, þar sem við kynnumst bæði gerandanum og aðstandanda fórnarlambsins. Djúp spor er nýtt heimildarverk um baráttuna við ástina, áföll og fyrirgefninguna.
Verkið er unnið af Jennýju Láru Arnórsdóttur og Jóel Sæmundssyni og byggir það á raunverulegum atburðum, en Jenný Lára hefur áður unnið verk með þessari aðferð, en það var verkið Elska sem var unnið upp úr viðtölum við fólk um sambönd þeirra og hugmyndum um um ástina. Það verk var sýnt víða á norðurlandi, í Reykjavík og á Act Alone leiklistarhátíðinni og fékk góðar viðtökur.
Söfnunin hófst 8. febrúar og stendur til 8. mars og eru margir veglegir kaupaukar í boði fyrir þá sem styrkja. Hér má finna síðuna – smellið!
Höfundar – Jenný Lára Arnórsdóttir og Jóel Sæmundsson
Leikstjóri – Bjartmar Þórðarson
Leikarar – Jenný Lára Arnórsdóttir og Jóel Sæmundsson
Búningar – Sandra Hrafnhildur Harðardóttir
Tónlist og hljóð – Mark Eldred
Ljós – Arnar Ingvarsson
Meðframleiðendur – Katla Rut Pétursdóttir og Þórunn Guðlaugsdóttir