Íslandsbanki ætlar að loka útibúi sínu á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi og verða íbúar á Nesinu þá bankalausir.
Mest eftirsjá er af hraðbankanum sem hefur verið mikið notaður enda staðsetning hans frábær fram á gangi undir þaki og hefur verið ákveðið að halda minningarathöfn um hann, þá fyrstu sem vitað er um vegna hraðbanka í veröldinni allri.