Quantcast
Channel: Eiríkur Jónsson » Langar fréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053

LEIFTURSÓKN DAVÍÐS GEGN FORSETAFRAMBJÓÐENDUM

$
0
0

Tónskáldið og listamaðurinn Sverrir Stormsker skrifar grein í Morgunblaðið í dag um forsetaframbjóðendur og varla án vitundar ritstjórans, Davíðs Oddssonar.

Mannlýsingarnar í grein Sverris eru án hliðstæðu í íslenskri fjölmiðlasögu en þar segir meðal annars efnislega:

…að Andri Snær sé Vigdís Finnbogadóttir með pung.

…að Maggi í Texasborgurum gæti farið illa með Ólaf því hann sé góður í beikonborgurum líka.

…að Halla Tómasdóttir sé brún á nefinu eftir alla auðmannarassasleikjuna á tímum útrásarvíkinga.

…að Guðni Th. sé greindarlegur, við”feldinn” langlegukommi.

Að mati stjórnmálaskýrenda getur tilgangurinn með birtingu greinarinnar ekki verið annar en að undirbúa væntanlegt forsetaframboð Davíðs Oddssonar – sjá eldri frétt hér – þetta sé í raun ótrúleg leiftursókn gegn þeim sem þegar hafa tilkynnt forsetaframboð sitt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053