Nú rignir inn fréttum um „fyrsta“ fimm stjörnu gististaðinn á Íslandi,sem sé í Keflavík. Og sá næsti verði við Hörpu
En er þetta rétt?
Það var undir lok síðustu aldar sem tekið var upp opinbert stjörnukerfi fyrir gististaði á Íslandi og notast við danska staðla. Gerð voru sýnishorn af merkingum til að setja á hótelin með merkingum Ferðamálaráðs; þessi bláu skilti sem eru á flestum gististöðum á Íslandi.
Það voru gerð skilti af öllum gerðum, þar með talið fyrir 5 stjörnu hótel. Þegar ljóst var að enginn gististaður á Íslandi uppfyllti slíkt og skiltið verið í geymslu í mörg ár var Magnúsi Oddssyni,sem var ferðamálstjóri í nær tuttugu ár, gefið skiltið þegar hann lét af störfum og hefur það því í mörg ár prýtt sumarbústað hans í Grímsnesinu sem fyrir bragðið hlýtur því að vera fyrsti fimm stjörnu gististaðurinn á Íslandi.