Quantcast
Channel: Eiríkur Jónsson » Langar fréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053

ÓLÖF NORDAL Á SPÍTALA

$
0
0

Ólöf Nordal innanríkisráðherra þarf að gera hlé á kosningabaráttu sinni vegna veikinda og hefur sent frá sér yfirlýsingu:

Kæru vinir,

Ég þarf að fara mér hægt næstu daga og vikur þar sem ég þurfti að leggjast inn á spítala vegna lungnabólgu og sýkingar. Það er ekki gaman að kljást við slíkt, síst nú þegar hugur minn er í kosningarbaráttunni, en ég verð að láta duga að fylgjast með af hliðarlínunni — ég veit að þið sýnið því skilning. Ég mun leggja mitt af mörkum eftir því sem kostur er.

Nú sem áður get ég seint fullþakkað læknum, sérfræðingum og öllu okkar frábæra heilbrigðisstarfsfólki fyrir framúrskarandi umönnun.

Ég þakka allar hlýjar óskir og sendi félögum mínum baráttukveðju.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053