Helga Helgasyni, formanni Íslensku þjóðfylkingarinnar, er ekki skemmt þegar tveir fyrrum félagar hans í pólitíkinni sleikja sólina á Spáni:
“Þeir eru víst saman á Spáni ásamt spúsum sínum þessa dagana, Gunnlaugur Ingvarsson og Gústaf Níelsson sem sviku hugsjón sína og baráttumál Íslensku þjóðfylkingarinnar fyrir fargjald og silfurpeninga,” segir Helgi en þeir Gústaf og Gunnlaugur áttu að leiða lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum í síðustu kosningum en hættu snögglega við eftir viðkynningu við formanninn.