Þingfréttaritari sendir skeyti:
—
Nú blasir við að Ríkiskaup þurfa að efna til útboðs vegna kaupa á barnastólum í ráðherrabíla og bíl forseta Alþingis. Ástæðan er sú að tveir af ráðherrum Engeyjarstjórnarinnar eru með ungabörn, þær Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra frá Torfastöðum i Biskupstungum og ferðamálaráðherrann með langa nafnið, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Svo er það væntanlegur forseti Alþingis Unnur Brá Konráðsdóttir, sem líka á ungabarn.
Þá þarf Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis væntanlega að fjárfesta í bleyjuskiptiborðum.
Það eru ekki aðeins þessar þrjár alþingiskonur sem eiga ungabörn, því í þessum ungmæðrahópi er líka Píratinn og skagfirðingurinn Eva Pandora Baldursdóttir sem á unga dóttur.
Líklega verður því algengara að sjá barnapela í þingflokksherbergjunum á næstunni en brennivínspela eins og hér áður fyrr. Þá vildi það brenna við á löngum og leiðinlegum kvöldfundum að slíkir pelar væru undir borðum eða úti í hornum á stangli í þingflokksherbergjunum.