–
Á hinum vinsæla veitingastað/sjoppu/bensínstöð Skálanum í Þorlákshöfn er ekkert verið að okra kaffinu. 200 krónur með ábót. Að öllum líkindum er hvergi hægt að fá ódýrari kaffibolla á veitingastað hér á landi.
Uppáhellingin í Skálanum jafnast kannski ekki á við það fínasta sem býðst fyrir rúmar 600 kr. á kaffihúsum í 101 Reykjavík, en er alveg skammlaus.
Enn ein ástæðan til að flytja til Þorlákshafnar – þar sem fá má einbýlishús á svipuðu verði og tveggja herbergja blokkaríbúð í Reykjavík – íbúð sem er reyndar ekki til.