Á mettíma hefur risið fjölbýlishús á horni Mýrargötu og Seljavegar í vesturbæ Reykjavíkur og hefur byggingin vakið athygli vegna nýstárlegrar byggingaraðferðar, húsið ser sett saman úr einingum líkt og húsgögn í IKEA á steyptum grunni. Einingarnar koma tilbúnar frá Litháen á vegum Jóns í Byko.
Nágrannar héldu að þarna væri verið að reisa ódýarr stúdentaíbúðir, byggingin minnir á danska stúdentagarða, eða þá að þarna væri á ferð langþráður möguleika fyrir ungt fólk að kaupa sína fyrstu eign.
Annað kemur í ljós þegar sölusýning var auglýst í gær. Íbúðirnar kosta frá 75 milljónum og upp í 175 milljónir – og þetta er hálfgerður pappakassi.