Þessi andamamma með átta unga kom gangandi úr portinu við Hressingarskálann á bak við Hótel Borg og og tifaði yfir hellulagt port Jómfrúarinnar með stefnuna á Tjörnina.
Þegar einn litli unginn féll um á misfellu og átti erfitt með að standa á fætur stoppaði andamamma alla hina ungana sjö og saman biðu þau eftir að sá litli næði hópnum sem hann gerði.
Svo var haldið áfram.