Kannski er sjö tíma svefn lykillin að hamingjunni. Svo má ætla ef marka skal nýja bandaríska rannsókn á svefnvenjum þar sem þeir sem sváfu 7,1 tíma á nóttu töldu sig “perfectly happy”. Tvö þúsund manns tóku þátt í rannsókninni.
Þeir sem sváfu minna en 6,8 tíma á nóttu voru óhamingjusamir í samböndum, með sífelldar áhyggjur og fundu sjaldan fyrir ánægju og gleði.
Þá sýnir rannsóknin að einstæðingar sofa mest og fráskildir minnst. Best er að fara í sturtu eða hugleiða fyrir svefn. Það versta að fara í tölvuleik.