Þessi frétt birtist hér fyrir nákvæmlega þremur árum.
—
Frá fréttaritara okkar í Þjóðkirkjunni:
—
Séra Karl V. Matthíasson hefur verið ráðinn sem prestur í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Hann verður í afleysingum fyrir séra Sigríði Guðmarsdóttur sem heldur til Noregs en hún hefur ráðið sig sem prófast í Noregi.
Ráðning séra Karls er til árs en áður var hann framkvæmdastjóri Samhjálpar eftir að hann hætti þingmennsku fyrir Samfylkinguna.
Séra Sigríður heldur í fótspor margra íslenskra presta sem ráðið hafa sig til prestsstarfa í Noregi.