Quantcast
Channel: Eiríkur Jónsson » Langar fréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053

HRYÐJUVERK OG PÓLITÍK

$
0
0

Elías Davíðsson, fræðimaður og rithöfundur, talar á fundi Alþýðufylkingarinnar í Friðarhúsi kl. 20:00 fimmtudagskvöldið 31. ágúst. Hann mun þar kynna rannsóknir sínar og bækur um hryðjuverk og hvernig valdamikil öfl nota þessa „ógn“ í pólitískum tilgangi.

Elías er búsettur í Þýskalandi hefur um árabil fengist við rannsóknir og skrif um hryðjuverk, einkum með falinni aðkomu ríkja – m.a. herja, leyniþjónusta, jafnvel dómstóla – sem leynt er bak við þéttan vef lyga og áróðurs. Á undanförnum árum hefur hann m.a. gefið út þrjár bækur um sviðsetningu hryðjuverka:

1. Hijacking America Mind’s on 9/11 (Algora Publishers, New York, 2013)
2. The Betrayal of India: Revisiting the 26/11 [Mumbai] Evidence (Pharos Media, New Delhi, 2017)
3. Psychologische Kriegsführung und gesellschaftliche Leugnung: Die Legende des 9/11 und die Fiktion der Terrorbedrohung (Zambon Verlag, Frankfurt a/M, 2017)

 

Fyrirlesturinn er í Friðarhúsi, Njálsgötu 87 fimmtudagskvöldið 31. ágúst og byrjar klukkan 20:00.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053