Þesssi frétt birtist hér fyrir sléttu ári undir fyrirsögninni: FRAMSÓKN ER ÆTTTGENG:
—
Karl Garðarsson, sem skipar fyrsta sæti Framsóknar í Reykjavík norður, er sonur Garðars Karlssonar, Karls Guðmundssonar, sem rak lengi bílaverkstæði og sjoppuna á Laugarbakka en hann var bróðir Skúla Guðmundssonar sem var þingmaður Framsóknar í rúm 30 ár.
Fleiri vita að Lilja Alfreðsdóttir untanríkisráðherra, sem er í fyrsta sæti flokksins í Reykjavík suður, er dóttir Alfreðs Þorsteinssonar sem lengi var borgarfulltrúi Framsóknar, potturinn og pannan í starfi flokksins í Reykjavík og stjórnarformaður Orkuveitunnar þegar hún blés sem mest út með byggingu Orkuveituhússins upp á Höfða.