Þessi frétt birtist hér fyrir nákvæmlega fjórum árum:
Hún var óskabarn þjóðarinnar og eftirlæti sjónvarpsáhorfenda en svo var eins og hún hyrfi.
Eva María Jónsdóttir tók -u-beygju í lífinu, kvaddi fjölmiðlana hægt og hljótt og hvarf á braut með draumaprinsinum, hjartalækninum sem hún kynntist í Vestmannaeyjum.
En hér má sjá hana í upphafi hins glæsta ferils sem stóð í nokkur ár; Eva María situr þarna fyrir á kápu bókar sem ætluð er ungu fólki – Mamma! Hvað á ég að gera? – bókin kom út fyrir 25 árum.
Þarna var ýmsum grundvallarspurningum svarað eins og:
Hvernig á að stytta buxur?
Hvaða múrtappar passa fyrir 6 millimetra bor?
Hvaða þvottur fer í suðu?
—
Kannski komin tími til að Eva María snúi aftur og leyfi almenningi að njóta hæfileika sinna og þokka?