Leikkonan Edda Björgvinsdóttir ljómaði og skein skært þegar kvikmyndin Undir trénu var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Þar fangaði hún athygli erlendra kvikmyndasérfræðinga og uppskar aðdáun fyrir leik sinn í myndinni sem fumsýnd verður eftir nokkra daga.
Edda verður 65 ára síðar í þessum mánuði..
Hátíðarforsýning á myndinni verður á morgun í Háskólabíói og hefur verið flutt aftur til klukkan 21:00 vegna landsleiks í knattspyrnu fyrr um kvöldið.