Þessi frétt birtist hér fyrir nákvæmlega fjórum árum undir fyrirsögninni NEKTARMYND AF MERKEL og nú eru kosningar aftur í Þýskalandi:
—
Eftir glæsilegan kosningasigur Angelu Merkel í Þýskalandi um helgina fer nektarmynd af henni nú eins og eldur í sinu um veraldarvefinn.
Myndin sýnir þrjár stúlkur á nektarströnd á sjöunda áratugnum og staðhæft að ein þeirra sé núverandi kanslari Þýskalands.
Ekki hefur það þó verið staðfest opinberlega.
Í ágætri heimildarmynd frá BBC sem Ríkissjónvarpið sýndi í gærkvöldi um Angelu Merkel birtust margar myndir af henni frá þessum tíma – og flest bendir til að þetta sé einmitt hún.