Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins, heilsaði Sigmundi Davíð, fyrrum formanni Framsóknarflokksins með virktum í upphafi fundar sem ferðaþjónustufólk stóð fyrir með frambjóðendum. Svo stóðu þeir hlið við hlið á sviðinu og ekki að sjá neina óvild þeirra á milli þrátt fyrir köpuryrðin sem áður hafa flogið.
Kannski að þetta viti á óvænt stjórnarmynstur, framsóknarmennirnir með íhaldinu og svo Samfylkinguna sem hækju.
BDSM stjórnin.