Úr innsta hring:
—
Meirihlutaflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur eru í óða önn að undirbúa sig fyrir kosningar næsta vor og um leið á fullu að úthluta fjármunum til að efla stöðu sína í borginni með fleiri göngustígum, meiri peningum í leikskóla, reyna fá fleiri íbúðir fyrir húsnæðislausa, opna Víðines fyrir utangarðsfólk og auka þjónustu Strætó svo fátt eitt sé nefnt.
Það nýjasta er að Dagur borgarstjóri ætlar að láta opna almenningssalernin sem hafa verið lokuð í farþegasal Strætó í Mjódd í 5 ár. Þá þurfa mörg þúsund farþegar Strætó ekki lengur að fara á klósettin hjá Olís eða að hlaupa út í göngugötuna í Mjódd á klósettin þar eða hægja sér hjá Fisksalanum í Mjódd.
Talið er víst að borgarstjóri muni vígja nýju salernin þegar þar að kemur.