Quantcast
Channel: Eiríkur Jónsson » Langar fréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053

BYLTINGIN Í IÐNÓ

$
0
0

Úr kommúnistadeildinni:

Fyrir 100 árum var Rússland í djúpri alhliða kreppu í miðri heimsstyrjöld. Baráttan gegn stríðinu og þrengingum alþýðunnar náði hámarki þegar 2. Sovétþingið tók völdin 7. nóvember, og hóf að knýja fram friðarsamning og félagsvæðingu í samfélaginu.

 

Þetta er einhver merkasti og áhrifamesti atburður seinni tíma sögu, og veitti innblástur fyrir baráttu verkalýðsins um allan heim fyrir sósíalisma og bættum kjörum. Októberbyltingin hefur haft áhrif á framvindu sögunnar æ síðan. Þó að beinir ávinningar hennar hafi tapast um tíma að verulegu leyti, er hún mikil uppspretta lærdóma í verkalýðsbaráttunni og verður um ókomna tíð.

 

Á þessum tímamótum hafa fern samtök, Alþýðufylkingin, MFÍK, MÍR og Sósíalistaflokkur Íslands tekið sig saman um að minnast byltingarinnar á hátíðarfundi í Iðnó, þriðjudaginn 7. nóvember kl. 20:00.

 

Kynnir er Árni Hjartarson

Ávörp flytja:

Skúli Jón Unnarson

Sólveig Anna jónsdóttir

Vésteinn Valgarðsson

Sólveig Hauksdóttir les ljóð

Gunnar J Straumland kveður frumsamið efni

Tónlist:

Svavar Knútur

Þorvaldur Örn Árnason

Þorvaldur Þorvaldsson

Aðgangur ókeypis, en frjálsum framlögum safnað á staðnum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2053