Þekktur aðili í efra lagi íslenskrar ferðaþjónustu gerir athugasemd við viðbrögð vegna fréttar um rithöfundinn og fyrrverandi ritstjóri blaðsins Titanic, Oliver Maria Schmitt, sem vandar Íslandi ekki kveðjurnar í kafla nýrrar bókar. Hann segir veðurfarið hryllilegt, Íslendinga hrokafulla og matinn, ef mat skyldi kalla, vondan. Sjá HÉR!
Athugasemdin er eftirfarandi:
Er er þetta ekki farið að minna á bankauppganginn fram til 2008? Ef einhverjar krítískar raddir heyrðust var ekki staldrað við og skoðað heldur talað um glettni, ókunnugleika eða léttvægi fréttar. Eigum við ekki að bíða þar til við erum búinað fá nokkur hundruð svona fréttir til að sjá hvort einhver alvara sé þar á bakvið?