Herrafataverslun Kormákar og Skjaldar hefur brotið blað í sögu sjónvarpsauglýsinga á Íslandi með því að fá að taka upp eina slíka á Mokka á Skólavörðustíg sem er eitt elsta og þekktasta kaffihús höfuðborgarinnar.
Margir hafa reynt en ekki fengið.
- Hefði ekki verið nær að taka hana upp á Ölstofunni sem þið rekið sjálfir?
“Það eru börn í auglýsingunni,” segir Kormákur kaupmaður.