Neytandi sendir póst:
Það er ekki nema nokkur hundruð metrar á milli verslana Víðis og 10-11 í Vesturbænum og verðmunurinn á kaffipakknum næstum eins mikill.
Í Víði er hægt að fá kaffipakkann á tæpar sjöhundruð krónur en í 10-11 kostar sami pakkinn rúmar þúsund krónur.
Ég held ég gangi þessa nokkur hundruð metra næst áður en ég helli upp á.