Ragnheiður Bjarnadóttir tók þessa mynd af tveimur konum að brjóta þvott af snúru á Húsvík um 1940.
Þarna skín hreinlætið bæði af þvotti og konum.
Myndin er frá Ljósamyndasafni Reykjavíkur og myndatexti fylgir úr ljóðabókinni Þrjár hendur eftir Óskar Árna Óskarsson:
Klemmurnar á þvottasnúrunum
hafa hangið úti í allan vetur
og beðið eftir sængurverum
og litríkum bolum
sem einhver mun vonandi tína
upp úr stórri bastkörfu
í geislandi vorsól