Sandstrendurnar í Maspalomas á Kanarí eru engum líkar og þangað er hægt að koamst fyrir spottprís í sumar.
Í sumar verður í fyrsta sinn í 10 ár boðið upp á sumarferðir til Kanarí hjá Úrval Útsýn og Þórunn Reynisdóttir framkvæmdastjóri er ánægð með viðtökurnar:
“Salan fer mjög vel af stað,” segir hún full tilhlökkunar.
Boðið er upp á góð fjölskylduhótel í sumar og í strandbænum Maspalomas eru hvítar strendur, sundlaugagarðar og golfvellir. Þangað er hægt að komast fyrir 79.900 krónur.