“Guðni Th. Jóhannesson væntanlegur forsetaframbjóðandi kom á fund okkar þingmanna Íslandsdeildar ÖSE í gær með 20 þingmönnum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og flutti þar fyrirtaks fyrirlestur um varnarmál Íslands í sögulegu samhengi. Ef myndin prentast vel má greina að Guðni hugsar ,,Jæja, í hvað hef ég komið mér, þarf ég nú að ,,pósa” með þingmönnum?” segir sjálfstæðisþingkonan Sigríður Andersen.
Og viðbrögðin láta ekki á sér standa á Netinu:
Helga Nielsen segir: Ég þekki Guðna ekki neitt, en hann höfðar mjög sterkt til mín.
Júlíus Ragnar Pétursson: Guðni er THE MAN.
Og svo stingur einn upp á því að Guðni skelli sér í grá jakkaföt.