Frá fréttaritara okkar í nágrenni Bessastaða:
—
Í gær var móttaka í Lýsi úti á Granda þar sem Katrín Pétursdóttir forstjóri fyrirtækisins var gestgjafi. Katrín hafði boðið þangað ýmsum með djúpa vasa og góð ráð.
Tilefnið var kynning á forsetaframbjóðandanum Davíð Oddssyni. Hann var þarna á staðnum og bar sig vel. Útbýtt var eyðublöðum fyrir undirskriftir meðmælenda og eftir að Davíð hafði sagt gamansögur og tekið í hendur viðstaddra var hópurinn sendur út í vorkvöldið með meðmælablöð honum til handa.