Forsetaframbjóðendurnir Davíð Oddsson og Andri Snær Magnason fóru í kosningaferðalag á Austfirði og tóku að sjálfsögðu flugið.
Svo ljónheppnir voru þeir að lenda næstum saman með eiginkonum sínum í fluginu; Davíð fyrir framan til hægri og Andri Snær fyrir aftan til vinstri – skemmtilegt framboðsflug.