Borist hefur yfirlýsing frá Símanum vegna fréttar hér um væntanleg kaup Símans á ljósvakahluta fjölmiðlafyrirtækisins 365:
—
„Síminn er skráð félag á hlutabréfamarkaði með upplýsingastefnu í samræmi við þá stöðu sína.
Fyrirtækið tjáir sig því ekki um getgátur og orðróm.
Vegna fullyrðinga á opinberum vettvangi í dag viljum við hins vegar taka fram að Síminn hefur ekki keypt ljósvakamiðla 365.
Viðræður standa ekki yfir.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir”
—
athugsemd ritstj.: Sagt er að Síminn hafi ekki keypt og viðræður standi ekki yfir. En ef viðræðum sé lokið og gengið verði frá sölunni í næsta mánuði?