Kaupmennirnir í Fjarðarkaup verða með lokað alla verslunarmannahelgina þannig að verslunarfólkið sem þar starfar geti notið helgarinnar sem því er helguð.
Þeir loka ekki bara á mánudaginn heldur líka á laugardag og sunnudag.
“Svona eiga kaupmenn að vera,” sagði ánægður viðskiptavinur sem ætlar að birgja sig upp fyrir helgina í Fjarðarkaupum strax í dag.