Það ríkti gleði og ánægja í dönsku konungshöllinni þegar Margrét drottning tók á móti Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra á dögunum.
Vel fór á með Sigurði Inga og drottningunni og þau ræddust að sjálfsögðu við á dönsku enda bjó Sigurður Ingi um árabil í Kaupmannahöfn þar sem hann lærði dýralækningar.
Bertel Haarder, menningarmálaráðherra Dana, bættist svo í hópinn en hann þykir einn merkasti hugsuður í dönskum stjórnmálum og hefur verið þar í framvarðasveit frá því áður en íslenski forsætisráðherrann var þar í námi – og er enn að.