Garðar Kjartansson fasteignasali vinnur að því að selja glæsihöll athafnamannsisns Skúla Mogensen á Fjölnisvegi 11. Garðar hefur verið að bjóða fjársterkum aðilum húsið en það mun ekki fara í almenna sölu eða verða auglýst sérstaklega.
Skúli hefur verið að fullgera aðra glæsivillu sem Garðar sá einnig um að selja honum, Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnaranesi, og hyggst Skúli flytja þangað eftir áramót.
Ekki verður sett verð á Fjölnisveg 11 heldur óskað eftir tilboðum en einbýlishús í þessari stærð í Þingholtunum hafa verið að seljast á 300 – 400 milljónir.