“Við komum hingað í gærkvöldi og lögðum bílnum,” sagði japanskt par á bílaleigubíl sem varð hissa síðdegis í dag þegar það kom að vitja bílsins og var bent á að hann sneri öfugur miðað við akstursstefnu.
Parið hafði ekið upp Skólavörðustíginn í gærkvöldi frá Laugavegi en það er bannað. Hvað þá að leggja öfugt.
Parið var búið að fá sektarmiða upp á 2.500 krónur vegna stöðumælabrots en enga aukasekt fyrir að leggja öfugt.
Svo hvarf japanska parið á braut, sneri bílnum á staðnum og ók – niður Skólavörðustíginn í fyrsta sinn.