Niðurrif á húsunum númer 36 og 38 við Suðurmýri (Nesveg) á Seltjarnarnesi er á lokametrunum og við það losna stærðar lóðir á einni eftirsóttustu staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Húsin sem þarna er verið að rífa hafa lengi staðið auð hlið við hlið, ónýt og óíbúðarhæf. Enda gýs upp megn óþefur af þeim við niðurrifið – sem hefur skotgengið síðustu daga.