Opnað hefur verið kaffihús í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins við Háaleitisbraut, undir nafninu Bjarna Café.
Eru flokksmenn hvattir með rafrænum dreifimiðum til að mæta:
Kæru Sjálfstæðismenn í Reykjavík
Við minnum á að kosningaskrifstofan okkar, Bjarna Café, í Valhöll, er opin virka daga frá kl. 16:00 til 19:00 og frá 14-18 um helgar.
Það er alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir.
Kíkið við, fáið ykkur kaffi og léttar veitingar.
Sjáumst á Bjarna Café í Valhöll