Frá fréttaritara undir Eyjafjöllum:
—
Athafnamaðurinn Sigurður Sólonsson, sonur Sólons bankastjóra Búnaðarbankans á meðan hann var og hét, er að reisa lúxushótel undir Eyjafjöllum í landi Rauðsbakka sem hann á sjálfur.
Verið er að steypa hótelið upp en það er beint suður af Eyjafjallajökli.
Næsti bær er Önundarhorn en þar kom lögreglan upp um gríðarlega hassræktun á dögunum eftir að rafmagnsreikningurinn á bænum fór uppúr öllu velsæmi.