Opnað hefur verið nýtt veitingahús á Tenerife þar sem gestir snæða naktir. Nýtur staðurinn mikilla vinsælda.
Gestir afklæðast í búningsherbergjum áður en gengið er i salinn en borð eru aðskilin með bambustjöldum svo fólk fái að vera í friði. Þjónustufólk er einnig nakið ef frá er talið fíkjublað og á hlaðborði liggur nakið fólk smurt súkkulaði, þakið jarðarberjum og kallað eftirréttur.
“Það er mikil traffík, alltaf fullt,” segir eigandinn, Tony de Leonardis.