Rodrigo Alves er alsæll eftir að hafa farið í 50 lýtaaðgerðir nú síðast til til að lagfæra hnakkann eilítið og skerpa á augnkrókum.
Rodrigo er nefndur hinn raunverulegi Ken eftir maka Barbiedúkkunnar og er vel að nafngiftinni kominn, vinsæll í sjónvarpsviðtölum í Englandi; einlægur og opinskár.
“Nú hæfir andlit mitt sál minni,” segir þessi 33 ára pjattrófa í sjöunda himni með sjálfan sig.
Aðgerðirnar hafa kostað Rodrigo hátt í 50 milljónir íslenskar krónur sem hann hefur fjármagnað með sparifé sínum og gildum arfi frá foreldrum sem hafa ekki getað fylgst með þessari umbreytingu á syninum þar sem þau eru horfin yfir móðuna miklu.
“Ég var alltaf óánægður með útlit mitt en ekki lengur,” segir hann.