Það eru biðlistar víðar en á Landspítalanum.
Hjólreiðaverkstæði hafa ekki undan.
Hjá Kríunni, tískuhjólabúðinni á Granda, er tveggja vikna bið eftir að fá gert við sprungið dekk (tekur fimm mínútur).
Hjá Ellingsen, í næsta húsi á Grandanum, er þriggja daga bið (ef þú ert í klíkunni).
Hjá Borgarhjólum á Hverfisgötu er þetta hins vegar gert samdægurs en margir hjólreiðamenn sniðgengu verkstæðið vegna auglýsingar í glugga um að Gyðingar fengju þar ekki afgreiðslu (þeir fá það núna).