Þessi frétt birtist í Morgunblaðinu fyrir mörgum árum og sagði frá opnum veitingastaðar í Austurstræti þar sem nú er City Center Hotel.
Á myndinni situr annar eigandinn, Guðmundur Franklin Jónsson, sem stuttu seinna yfirgaf heimalandið og fór að brillera í kauphöllinni á Wall Street í New York, stofnaði síðar stjórnmálaflokkinn Hægri græna, fór í forsetaframboð um stund en er nú hótelstjóri í Danmörku.
Man einhver eftir Fiskur og Franskar í Austurstræti?