Í dag var opnuð málverkasýning fanga í Fangelsinu Hólmsheiði. Þar eru sýndar myndir sem fangar máluðu á námskeiði Evolvia, Vedalist.
Eins og sjá má á myndunum eru margir fangar hæfileikaríkir á listasviðinu og kann Fangelsismálastofnun kennaranum Matildu Gregersdotter bestu þakkir fyrir sitt framlag en hún hefur haldið slík námskeið í fangelsum landsins um þriggja ára skeið.
Vegna staðsetningar sýningarinnar er hún ekki opin almenningi en þeir sem erindi eiga í fangelsið geta notið hennar þar sem myndirnar hanga upp á veggjum fangelsisins.